Vertu memm

Markaðurinn

Jim Beam Kokteilakeppni fer fram á B5

Birting:

þann

Kokteilakeppni 2016 - Jim Beam

Nú á miðvikudaginn, 23. nóvember kl. 20:00 mun hin árlega Jim Beam Kokteilakeppni fara fram á B5.  Fjöldi keppenda hefur verið skorinn niður í 12 manns sem keppa til úrslita. Hver keppandi mun gera sinn innsenda drykk ásamt einum Mystery Basket drykk.

Keppnin hefur verið mjög vel sótt síðustu ár og er þess skemmst að minnast að í fyrra var nánast húsfyllir á Bryggjunni Brugghúsi þegar 60 manns kepptu í Whiskey Sour keppninni.

Búist er við frábærri stemningu og ætlar B5 að bjóða fjóra mismunandi bourbon kokteila á 1.000 kr. og Stella Artois á 500 kr. Óli Óla sér um veislustjórn og DJ Danni Deluxe sér um að halda uppi stemningunni.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið