Vertu memm

Bocuse d´Or

Jérôme Bocuse fetar í fótspor föður síns

Birting:

þann

Feðgarnir Jérôme Bocuse og Paul Bocuse

Feðgarnir Jérôme Bocuse og Paul Bocuse

Jérôme Bocuse sonur Paul Bocuse hefur verið kosinn forseti Bocuse d’Or keppninnar.  Jérôme er þó enginn nýgræðingur í keppninni en hann hefur tekið virkan þátt og setið í fjölmörgum nefndum í tengslum við keppnina frá því að keppnin var haldin fyrst árið 1987.

Jérôme útskrifaðist sem matreiðslumaður árið 1992 frá hinum virta skóla „The Culinary Institute of America“.  Síðan þá hefur hann verið viðlogandi Bocuse d’Or og sem varaforseti í Bocuse d’Or USA Foundation ásamt matreiðslumönnunum Thomas Keller og Daniel Boulud.  Að auki hefur Jérôme rekið franska veitingastaðinn „Les Chefs de France“ frá árinu 1996.  Til gamans má geta að Jérôme var gestadómari á Top Chef árið 2009.

Það verður því táknrænn viðburður þegar Bocuse d´Or fer fram í byrjun á næsta ári, því að keppnin verður 30 ára og að auki nýr forseti sem stýrir keppninni.

Bocuse d´Or keppnin fer fram 24. og 25. janúar 2017 í Lyon í Frakklandi, þar sem Viktor Örn Andrésson mateiðslumaður keppir fyrir hönd Íslands. Aðstoðarmenn eru Hinrik Örn Lárusson og Sölvi Már Davíðsson.  Dómari sem dæmir fyrir hönd Ísland er Sturla Birgisson matreiðslumeistari.

Hér að neðan eru vinningshafar frá því keppnin hófst árið 1987. Árið 2001 lenti Hákon Már í 3. sæti sem er besti árangur Ísland fram að þessu.

Ár Bocuse d’Or Silfur Bocuse Brons Bocuse
1987 France Jacky Freon Belgium Michel Addons Germany Hans Haas
1989 Luxembourg Léa Linster Belgium Pierre Paulus Singapore William Wai
1991 France Michel Roth Norway Lars Erik Underthun Belgium Gert Jan Raven
1993 Norway Bent Stiansen Denmark Jens Peter Kolbeck Belgium Guy Van Cauteren
1995 France Régis Marcon Sweden Melker Andersson Germany Patrick Jaros
1997 Sweden Matthias Dahlgren Belgium Roland Debuyst Norway Odd Ivar Solvold
1999 Norway Terje Ness France Yannick Alleno Belgium Ferdy Debecker
2001 France François Adamski Sweden Henrik Norström Iceland Hákon Már Örvarsson
2003 Norway Charles Tjessem France Frank Putelat Germany Claus Weitbrecht
2005 France Serge Vieira Norway Tom Victor Gausdal Denmark Rasmus Kofoed
2007 France Fabrice Desvignes Denmark Rasmus Kofoed Switzerland Frank Giovannini
2009 Norway Geir Skeie Sweden Jonas Lundgren France Philippe Mille
2011 Denmark Rasmus Kofoed Sweden Tommy Myllymäki Norway Gunnar Hvarnes
2013 France Thibaut Ruggeri Denmark Jeppe Foldager Japan Noriyuki Hamada
2015 Norway Ørjan Johannessen United States Philip Tessier Sweden Tommy Myllymaki

Mynd: aðsend

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið