Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Jennifer Le Nechet fyrsta konan til að vinna World Class barþjónakeppnina | Andri stóð sig frábærlega vel

Birting:

þann

Jennifer Le Nechet

Jennifer Le Nechet frá Frakklandi sigraði mótið og er hún jafnframt fyrsta konan til að vinna World Class barþjónakeppnina.
Mynd: theworldclassclub.com

Nú í vikunni fór fram World Class barþjónakeppnin í Miami þar sem Andri Davíð Pétursson keppti fyrir hönd Íslands og stóð sig frábærlega vel.

Skrunið niður til að horfa á vídeó.

Nærri 10.000 barþjónar frá öllum heimshornum kepptu og voru aðeins 56 barþjónar valdnir sem kepptu í Miami.

Sjá einnig: Andri Davíð keppir í stærstu barþjónakeppni heims

Það var stíft prógram hjá Andra í Miami, en keppendur þurftu að fara í gegnum flóknar og erfiðar þrautir til að komast áfram, en fyrst komust 12 þjóðir áfram, síðan 6 í lokakeppnina.

Andri Davíð Pétursson

„…settum okkur það markmið að vekja athygli og við náðum því markmiði fullkomlega.“

Því miður komst Andri ekki áfram, en engu að síður frábær árangur.

Þau 12 lönd sem komust áfram og kepptu í undanúrslitum voru:

  • Belgía
  • Kanada
  • Tékkland
  • Danmörk
  • Frakkland
  • Bretland
  • Mexíkó
  • Japan
  • Holland
  • Spánn
  • Svíþjóð
  • Taiwan

Löndin sem kepptu til úrslita voru:

  • Belgía
  • Tékkland
  • Danmörk
  • Frakkland
  • Japan
  • Taiwan

Það var Jennifer Le Nechet frá Frakklandi sem sigraði mótið og er hún jafnframt fyrsta konan til að vinna World Class barþjónakeppnina.

Hvernig fannst þér öll umgjörðin á keppninni?

Andri Davíð Pétursson

Andri Davíð í barþjónakeppninni.
Mynd: facebook / WorldClassBartendingIceland

Umgjörðin á keppninni er ein sú flottasta sem ég hef séð á ævinni!  Fagmenn í öllum stöðum, hvort sem það sé manneskjan sem fylgir þér á milli þrauta eða manneskjan sem dæmir.  5 stjörnu hótel á besta stað á South Beach Miami.

, sagði Andri í samtali við veitingageirinn.is

Ef þú lítur til baka, hvað hefði mátt fara betur hjá þér í keppninni?

Vissulega vöru tæknileg atriði sem ég hefði geta gert betur sem telur upp í heildarstigin. En heilt yfir er ég rosalega ánægður með eigin frammistöðu. Við Hlynur Björnsson Brand Ambassador hjá Ölgerðinni settum okkur það markmið að vekja athygli og við náðum því markmiði fullkomlega.

Það eru rosalega margir sem skipta máli í þessum geira, að tala um Íslenska gæjann hérna úti. Þátttöku minni í keppninni er langt í frá lokið því nú verður lögð áhersla á að stækka „networkið“ og kynnast fleirum snillingum.

Hefur þú hug á því að keppa í næsta World class?

Skráning í World Class á Íslandi hefst strax eftir að ég og Hlynur komum heim. Ég mun ekki taka þátt í þetta skiptið allavega. Ætla ekki að útiloka neitt með framtíðina. Það fer svakalegur tími í að undirbúa sig fyrir þessa keppni og það var á mörgum sviðum mjög erfitt fyrir mann eins og mig með tvö lítil börn og konu. Ég er ótrúlega þakklátur fyrir að fá yfir höfuð að snúa heim aftur til hennar Önnu minnar, hún sýndi mér ótrúlegan stuðning.

, sagði Andri að lokum.  Við óskum Andra innilega til hamingju með stórkostlegan árangur.

Vídeó

Hér má sjá Andra keppa í einni þraut í World class á Miami:

 

 

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið