Vertu memm

Food & fun

Íslenskir keppendur á matarhátíðinni Food & Fun í Finnlandi

Birting:

þann

Food & Fun - Turku Finnlandi

Food & Fun hátíðin í Turku í Finnlandi verður haldin í þriðja sinn dagana 5. til 9. október næstkomandi.  Íslenskir keppendur verða á hátíðinni en þeir eru:

Steinar Sveinsson

Steinar Sveinsson

Steinar Sveinsson

Steinar Sveinsson yfirmatreiðslumaður Matar og Drykkjar verður gestakokkur á veitingastaðnum Daphne.

Heimasíða Daphne

Reykjavík Bar Summit 2015

Ásgeir Már Björnsson.
Mynd: Roman Gerasymenko

Ásgeir Már

Ásgeir Már Björnsson einn fremsti barþjónn okkar íslendinga, verður gestabarþjónn á veitingastaðnum Tårget. Ásgeir er einn af frumkvöðlum kokteilmenningar á Íslandi og er metnaðarfullur barþjónn, hefur staðið t.a.m. fyrir kokteilhátíðinni Reykjavík Bar Summit. Ásgeir kemur til með að vera barþjónn á nýja barnum í miðbæ Reykjavíkur Pablo Discobar en framkvæmdir standa yfir og styttist í að hann opnar. Pablo Discobar er staðsettur við Ingólfstorg í Veltusundi 1.

Heimasíða Target

Íslandsmeistaramót barþjóna og vinnustaðakeppni 2014

Árni Gunnarsson (heldur á flösku) á Íslandsmeistaramóti barþjóna árið 2014.
Mynd: Kristín Bogadóttir.

Árni Gunnarsson

Árni Gunnarsson framreiðslumaður verður á veitingastaðnum The Cow. Árni hefur tekið þátt í fjölmörgum kokteilkeppnum að auki verið dómari.  Árni sigraði Íslandsmót barþjóna sem haldin var í febrúar s.l.

Heimasíða The Cow

Kahlúa kökukeppnin 2016

Axel Þorsteinsson.
Mynd: Ómar Vilhelmsson

Axel Þorsteinsson

Axel Þorsteinsson bakari & konditor mun töfra fram eftirrétti á veitingastaðnum Gaggui Kaffela. Axel er í fullum undirbúningi fyrir nýja starfið en hann kemur til með að vera yfirbakari á Bouchon Bakery í Kúveit.  Axel er mikill keppnismaður, lenti í öðru sæti í Eftirétt ársins 2014, 1. sæti í Eftirrétt ársins 2015, 1. sæti í keppninni Kahlúa kaka ársins 2016 og var Bakari ársins 2011.

Heimasíða Gaggui Kaffela

Gísli Matthías AuðunssonGísli Matthías Auðunsson

Það þarf vart að kynna Gísla Matthías Auðunsson matreiðslumeistara, eigandi tveimur af vinsælustu veitingastöðum landsins Matar og drykks í Reykjavík og Slippsins í Vestmannaeyjum.  Metnaðarfullur matreiðslumaður sem er núna í fullum undirbúningi að setja upp kokteila- og bjórbarinn Skál sem staðsettur verður í Matarhöllinni á Hlemmi.  Gísli verður gestakokkur á veitingastaðnum E. Ekblom.

Heimasíða E. Ekblom

Reykjavík Cocktail Club - POp-UP 2016 - #2

Arnar Geir Bjarkason og Teitur Ridderman Schiöth.
Mynd: RCC

Teitur Ridderman Schiöth

Teitur Ridderman Schiöth verður gestabarþjónn á Pinella Bar.

Teitur hefur margsinnis tekið þátt í kokteilkeppnum á Íslandi og sigraði til að mynda kokteilkeppni sem haldin var í Tjarnarbíói í byrjun sumars.

Heimasíða Pinella Bar

Ólöf Rún Sigurðardóttir og Leó Ólafsson

Ólöf Rún Sigurðardóttir og Leó Ólafsson

Leó Ólafsson & Ólöf Rún Sigurðardóttir

Leó Ólafsson og kærastan hans Ólöf Rún Sigurðardóttir verða á veitingastaðnum Tiirikkala.  Leó starfar sem barþjónn hjá Matarkjallaranum og Ólöf sem þjónn í Bláa Lóninu.  Leó hefur birt hér á veitingageirinn.is vandaðar og girnilegar uppskriftir sem vert er að prófa.

Heimasíða Tiirikkala

Heimasíða hátíðarinnar: www.foodandfunfinland.fi

 

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið