Vertu memm

Keppni

Íslenskir fagmenn keppa um Norðurlandameistaratitil í matreiðslu og þjónustu

Birting:

þann

Matvælasýningin Foodexpo

Matvælasýningin Foodexpo er haldin 18. til 20. mars 2018.

Íslenskir kokkar eiga tvo keppendur í norðurlandakeppninni Nordic Chef Of The Year í Herning í Danmörku 20. mars næstkomandi, samhliða keppninni keppir framreiðslumaður í Nordic Waiter Of The Year.

Hafsteinn Ólafsson

Hafsteinn Ólafsson

Hinrik Lárusson

Hinrik Lárusson

Hafsteinn Ólafsson sem er Kokkur ársins 2017 og starfar á Sumac Grill + Drinks keppir í Nordic Chef, í Nordic Chef Junior keppir Hinrik Lárusson frá Grillinu.

Lúðvík Kristinsson

Lúðvík Kristinsson

Í framreiðslu er það Lúðvík Kristinsson frá Grillinu sem keppir fyrir Íslands hönd.

Þjálfari Hafsteins og dómari í matreiðsluhluta keppninnar er Þráinn Freyr Vigfússon, þjálfari Hinriks er Sigurður Laufdal. Thelma Björk Hlynsdóttir þjálfar Lúðvík og dæmir jafnframt í framreiðslukeppninni.

Keppendur mæta vel undirbúnir til keppninnar og hafa æft vikum og mánuðum saman fyrir stóru stundina.

Logo Klúbbur Matreiðslumeistara KMÞað er klúbbur matreiðslumeistara sem sendir þessa þrjá keppendur til leiks og rekur klúbburinn afreksstarf í matreiðslu, keppnisstarf ungra matreiðslumanna í Kokkalandsliðinu og keppnina Kokkur ársins ásamt þátttöku í alþjólegum keppnum eins og hér um ræðir.

Skipulag keppninnar er í höndum Norðurlandasamtaka matreiðslumeistara og fer keppnin fram í Herning samhliða matvælasýningunni Foodexpo.

Með í för eru Björn Bragi Bragason forseti Klúbbs matreiðslumeistara, Hafliði Halldórsson matreiðslumaður er fararstjóri og Bjarni Gunnar Kristinsson er í eftirlitsnefnd með keppninni „Culinary Committie“ en hann kemur til með að sjá um Snapchat aðgang veitingageirans.

Gabríel Kristinn Bjarnason tekur þátt í norrænu ungliðastarfi og Ingimundur Elí nemi á Sumac er aðstoðarmaður við keppendur.

Mikið magn af tækjum og áhöldum sem fylgja keppendum en 2 bretti af búnaði var sent út til Danmörku fyrir nokkrum dögum síðan og í morgun var flogið til Herning með 150 kg af dóti í handfarangri.

Myndir: aðsendar / Chef.is

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið