Vertu memm

Bocuse d´Or

Ísland komst áfram – Bjarni á leið til Lyon

Birting:

þann

Bocuse d´Or 2018

Frá vinstri; Viktor Örn Andrésson þjálfari Bjarna, Sturla Birgisson dómari, Bjarni Siguróli Jakobsson keppandi og Ísak Þorsteinsson aðstoðarmaður Bjarna

Nú rétt í þessu voru úrslitin kynnt í Evrópuforkeppni Bocuse d´Or við hátíðlega athöfn sem urðu á þessa leið:

1. sæti – Noregur

2. sæti – Svíþjóð

3. sæti – Danmörk

4. sæti – Finnland

5. sæti – Frakkland

6. sæti – Belgía

7. sæti – Sviss

8. sæti – Ungverjaland

9. sæti – Ísland

10. sæti – Bretland

Þá er það orðið ljóst að Bjarni Siguróli Jakobsson kemur til með að keppa í hinni víðfrægu Bocuse d´Or sem haldin verður í Lyon í Frakklandi dagana 29. og 30. janúar 2019.

Innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.

Sérstök aukaverðlaun voru veitt:

Besti aðstoðarmaðurinn: Ítalía

Besti forrétturinn: Finnland

Besta kjötrétturinn: Frakkland

Eins og kunnugt er þá var Evrópuforkeppni Bocuse d´Or matreiðslukeppninnar haldin í Turin á Ítalíu síðastliðna daga 11. – 12. júní 208.

Það var Bjarni Siguróli Jakobsson matreiðslumaður sem keppti fyrir hönd Íslands. 20 evrópuþjóðir kepptu í forkeppninni um 10 sæti í aðalkeppnina í Lyon í Frakklandi í janúar 2019. Tuttugu og fjórar þjóðir fá keppnisrétt í Lyon eftir að hafa unnið forkeppni í sinni heimsálfu.

Bocuse d´Or 2018

Kjötfatið – Ísland

Bjarni Siguróli er mikill keppnismaður en hann hreppti titilinn Kokkur Ársins 2012 og náði öðru sæti í keppninni Matreiðslumaður Norðurlanda 2013.

Undirbúningur stóð yfir yfir í nokkra mánuði og rúmt tonn af eldhúsáhöldum og tækjum var sent til Turin. Þjálfari Bjarna er Viktor Örn Andrésson, bronshafi og Bocuse d´Or keppandi 2017, og aðstoðarmaður er Ísak Þorsteinsson.

Bjarni var þriðji keppandinn í eldhúsið í Turin, mánudaginn 11. júní og byrjaði að keppa klukkan 09:50 að staðartíma.

Bjarni Siguróli hafði 5 ½ klukkustund til þess að matreiða forrétt og kjötrétt fyrir 20 dómara. Afraksturinn var sannkallað listaverk og var annars vegar borinn fram á fallegum viðarplötum og hins vegar á glæsilegu silfurfati. Allt gekk samkvæmt áætlun og voru Bjarni, aðstoðarmaður hans og þjálfari að vonum hæstánægðir með úrslitin.

Nú halda áfram strangar æfingar hjá Bjarna Siguróla en hann stefnir ótrauður á verðlaunapall í Lyon.

Hvert þátttökuland átti fulltrúa í dómarateymi Bocuse d´Or og var matreiðslumeistarinn Sturla Birgisson sem dæmdi fyrir hönd Bocuse d´Or akademíunnar á Íslandi, sem er hópur fyrrverandi keppenda sem heldur utan um þátttöku Íslands í keppninni.

Góður árangur Íslendinga í Bocuse d´Or

Keppnin Bocuse d‘Or hefur verið haldin síðan 1987 en fyrsti Íslenski keppandinn tók þátt árið 1999. Það var Sturla Birgisson og náði hann fimmta sæti. Síðan þá hafa Íslendingar ávallt verið í níu efstu sætunum en besta árangri náði Hákon Már Örvarsson árið 2001 og Viktor Örn Andrésson árið 2017 þar sem þeir hrepptu bronsverðlaunin.

Fréttyfirlit hér.

Myndir: facebook / Bocuse d’Or Team Iceland

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið