Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Helga Sörens og Mano opna veitingastað á Spáni

Birting:

þann

Mano’s fast foodies - Alicante Spain

Helga Sörensdóttir Mandour, Mano Mandour og börn

Veitingastaðurinn Mano’s fast foodies opnaði nú í mars s.l. en staðurinn er staðsettur á Alicante á Spáni.

Eigendur eru hjónin Helga Sörensdóttir Mandour og Mano Mandour.

Mano’s fast foodies - Alicante Spain

Mmmm.. djús og túnfisk toast

https://www.instagram.com/p/Bg8IZlUF9rW/

Mano’s tekur 40 til 50 manns í sæti og opnunartíminn er 09:30 til 22:00 á virkum dögum og til miðnættis um helgar.

„Maðurinn minn heitir Mano, svo þýðir Mano líka “hönd” á spænsku og þar sem allt er handgert frá grunni hjá okkur fannst mér passa vel að nota þetta nafn.  Tók mjög langan tíma fyrir Mano að samþykkja það, en það hafðist“

Sagði Helga hress í samtali við veitingageirinn.is aðspurð um hvernig nafnið á staðnum varð til.

Mano’s fast foodies - Alicante Spain

Mano’s fast foodies - Alicante Spain

„Við höfum nördast mikið í pizzupælingum….“

Á Mano’s er boðið upp á fjölbreyttan matseðil, kaldpressaða djúsa, toasts, wraps, gott kaffi, pizzur og fleira góðgæti.

„Við höfum nördast mikið í pizzupælingum, t.d. lekur engin olía af pizzunum okkar, því við notum Sorrentina Mozzarella sem við flytjum inn frá Ítalíu og hann splittast ekki við háan hita eins og ódýrari ostar.  Einnig lekur áleggið ekki af þegar þú lyftir sneiðinni, þó pizzan sé brennandi heit, við notum typo „OO“ hveiti frá Ítalíu sem er einstaklega fíngert og gerir botninn stífari.  Við flytjum líka inn ítalska tómata fyrir sósuna.“

Mano’s fast foodies - Alicante Spain

Helga Sörensdóttir Mandour

Helga útskrifaðist sem matreiðslumaður árið 2008 og í þrjú ár lærði hún fræðin sín á Vox og útskriftarárið á Sjávarkjallaranum.

Eftir útskrift fór Helga að vinna aftur á Vox.  Því næst starfaði hún á Krúsku, eitt sumar á Marina, Slippbarnum, áður en hún fór til Noregs.  Í Noregi starfaði hún á Stavanger Forum hjá Sigurði Rúnari og Magnúsi Þorra.  Starfaði á Farris Bad sem er eitt flottasta Spa hótel Skandinavíu sem Sous Chef áður en henni bauðst staða sem yfirmatreiðslumaður á Grand Hotel og Pakkhuset.

Mano Mandour

Mano Mandour er viðskiptafræðingur að mennt en hann hefur verið atvinnumaður í sundi til fjölda ára.  Mano bjó um tíma á Ítalíu og pizzugerð hefur alltaf verið hans áhugamál.  Fór í Pizzaiolo skólann og starfaði við pizzugerð í Milano með fram sundinu.

Mano flutti síðan til Noregs þar sem hann starfaði á veitingastöðum og hótelum í Osló.

Mano’s fast foodies - Alicante Spain

Mano´s býður meðal annars upp á kaldpressaða djúsa

Túristamokstur og mjög lág gæði

„Við urðum fyrir miklum vonbrigðum með matarmenninguna á þessu svæði, bara túristamokstur og mjög lág gæði og ekkert handgert. Við viljum gefa fólki kost á góðum mat úr góðu hráefni sem lætur þér líða vel af að borða, á hlægilegu verði.“

Sagði Helga aðspurð um matarmenninguna á þessu svæði.

Við óskum þeim hjónum innilega til hamingju með nýja staðinn og hvetjum alla til að heimsækja þau á Mano’s fast foodies.

 Smellið hér til að skoða matseðillinn á Mano’s.

Mano’s fast foodies - Alicante Spain

Heimasíða: manosfastfoodies.com

Facebook: Mano’s -fast foodies-

Instagram: ManosFastFoodies

Myndir: Inga Sörensdóttir / Bryndís Þóra Jónsdóttir / manosfastfoodies.com

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið