Vertu memm

Uppskriftir

Heimagerðir Kleinuhringir

Birting:

þann

Kleinuhringir - Heimalagaðir

Bestir volgir og þá kannski með flórsykri sigtuðum yfir, eða þeir eru látnir kólna og þykkum glassúr dreypt yfir. Þeir eru samt alltaf langbestir nýsteiktir.

Hráefni:
200 ml mjólk eða vatn
1 1/2 msk þurrger
3 msk sykur
3 egg
50 g lint smjör
1 tsk vanilludropar
Rifinn börkur af 1 sítrónu
550 g hveiti
steikingarfeiti

Aðferð:
Vökvinn velgdur þar til hann er nálægt 37°C og hellt í skál. Gerið sett út í ásamt 1-2 tsk af sykri og látið standa þar til gerið er farið að freyða.  Þá er afgangurinn af sykrinum settur út í ásamt eggjum, smjöri, bragðefni og hluta af hveitinu.

Hrært vel og meira hveiti bætt út í smátt og smátt, þar til deigið er vel hnoðunarhæft og klessist ekki við hendur en er þó fremur lint. Hnoðað vel, mótað í kúlu, sett í hveitistráða skál og látið lyfta sér við stofuhita í 30-45 mínútur.

Þá er það slegið niður og flatt út í 1 cm þykkt, eða tæplega það.

Hringir stungnir úr því (8 cm þvermál) og afskurðinum svo hnoðað saman í kúlu sem er flött út og fleiri hringir stungnir út – það ættu að verða u.þ.b. 14-18 hringir úr deiginu. Raðað á bökunarpappírsörk og látnir lyfta sér á meðan feitin er hituð.

Þegar feitin er 180-190°C eru kleinuhringirnir settir gætilega út í, 3-5 í senn eftir stærð steikingarpottsins, og steiktir í 1 1/2-2 mínútur á hvorri hlið (þurfa reyndar oftast heldur styttri tíma þegar búið er að snúa þeim).  Teknir upp með gataspaða og látið renna af þeim á bökunarpappír.

Bestir volgir og þá kannski með flórsykri sigtuðum yfir, eða þeir eru látnir kólna og þykkum glassúr dreypt yfir. Þeir eru samt alltaf langbestir nýsteiktir.

Höfundur: Auðunn Sólberg Valsson matreiðslumeistari

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið