Vertu memm

Keppni

Heil herdeild af Íslenskum fagmönnum til Danmerkur | Snapchat veitingageirans með í för

Birting:

þann

Foodexpo - Herning í Danmörku 2016

Stór hópur af íslendingum er á leið til Foodexpo sýninguna sem haldin er í Herning í Danmörku, en samhliða sýningunni verða haldnar hinar ýmsar keppnir svo sem Matreiðslumaður Norðurlanda, Ungliðakeppni Norðurlanda og Framreiðslumaður Norðurlanda.  Sýningin hófst í dag og lýkur á þriðjudaginn 8. mars næstkomandi.

Denis Grbic Kokkur Ársins 2016 keppir fyrir Íslands hönd í keppninni Matreiðslumaður Norðurlanda (Nordic Chef Of The Year).

Í Ungliðakeppni Norðurlanda (Wild card) keppir Iðunn Sigurðardóttir frá Matarkjallaranum, Thelma Björk Hlynsdóttir framreiðslumaður starfandi á veitingastaðnum Olo í Finnlandi keppir í Framreiðslumaður Norðurlanda (Nordic Waiter).

Íslenska föruneytið er eftirfarandi

  • Agata Alicja Iwaszkiewicz (Ungliði)
  • Árni Þór Arnórsson (Stjórn KM, farastjóri)
  • Bjarni Gunnar Kristinsson (NKF dómaranefnd)
  • Björn Bragi Bragason (Forseti KM)
  • Hafliði Halldórsson (Framkvæmdarstjóri)
  • Natascha Elizabeth Fischer (Dómari þjóna)
  • Sigurður Helgason (Þjálfari Denis)
  • Steinn Óskar Sigurðsson (Stjórn KM, þjálfari Iðunnar)
  • Sölvi Már Davíðsson (Ungliði)
  • Sigurður Kristinn Laufdal (Eiginmaður Thelmu)
  • Viktor Örn Andrésson (Dómari) og Hólmfríður Björk Rúnarsdóttir.

Það er Klúbbur Matreiðslumeistara sem sendir keppendur í Matreiðslumann Norðurlanda og Ungliðakeppni Norðurlanda.  Sjónvarpstökulið frá Stöð 2 er með í för og kemur til með að sýna ferðalagið í máli og myndum 15. mars næstkomandi á Stöð 2.

Snapchat veitingageirans slæst í för með íslenska föruneytinu, fylgist vel með og addið: veitingageirinn á Snapchat

Til gamans má geta að seinni þáttur um úrslitakeppnina Kokkur Ársins verður sýndur á þriðjudaginn næstkomandi.

Myndir: Bjarni Gunnar Kristinsson

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið