Vertu memm

Markaðurinn

Hangikjöt með bechamel sósu, eplasalati og heimalöguðu hátíðarrauðkáli – Vídeó

Birting:

þann

Hangikjöt með bechamel sósu, eplasalati og heimalöguðu hátíðarrauðkáli

Kjötið

Hangikjöt, frampartsrúlla

Setjið hangikjötið í pott með köldu vatni og náið upp suðu rólega, í 25-35 mín. Lækkið hitann, setjið kjöthitamæli í kjötið og látið sjóða þar til kjötið nær 68°c kjarnhita. Það tekur rúmlega 2 hálfan tíma, en miðað er við 40 mín per kíló. Þegar kjötið er soðið takið pottinn af hellunni og látið kjötið kólna í pottinum.

Eplasalat

2 epli
1 dolla sýrður rjómi 36%
6 msk rjómi
1 1/2 msk hlynsýróp
1 askja rauð jarðaber
4 msk pecanhnetur
2 msk hunang
10 stilkar  dill
Safi úr hálfri sítrónu
1/2 tsk salt

Hitið ofninn á 160°C. Setjið pecanhnetur á plötu með bökunarpappír og hellið hunangi yfir. Bakið í 10 mín. Eplin eru skorin í lita teninga og jarðaberin skorin í fernt. Þeytið létt saman sýðran rjóma, hlynsýróp og rjóma. Saxið niður pecanhnetur og blandið öllu hráefninu saman í skál. Stráið örlitlu af hnetunum og dilli yfir.

Hátíðarrauðkál

1/2 stór rauðkálshaus
3 stk anís stjörnur
1 stöng kanill (eða 1 msk kanilduft)
½ stk  grænt epli
1 dl eplaedik
1 dl krækiberjavín eða krækiberjasaft
45 gr Appelsínusafi úr 1 appelsínu
2 skræl af appelsínubörk
1 dl vatn
1/2 tsk salt
1 msk bláberjasulta
2 msk af púðursykur eða eftir smekk

Saxið rauðkálhausinn í grófa strimla eða notið mandolín. Skrælið hýðið af eplinu og skerið í litla bitabita. Skrælið börk af appelsinunni og kreystið safann úr henni. Setjið allt hráefnið í pott og sjóðið í um klukkustund. Smakkið rauðkálið til eftir rúman hálftíma, gæti vantað púðursykur ef rauðkálið er of súrt eða edik ef það er of sætt, fer eftir smekk.

Jafningur

25 gr smjör
25 gr hveiti
3,5 dl mjólk
1 tsk múskat
1 msk sykur
½ tsk Salt
soðnar kartöflur

Hitið smjörið upp í potti og bætið hveitinu út í. Hrærið mjólkinni hægt út í smjörbolluna, rúmlega ½ dl í einu og hrærið vel á milli. Bragðbætið með múskati, salti og sykri. Bætið kartöflunum út í.

Höfundur: Snædís Jónsdóttir landsliðskokkur og matreiðslumeistari

Mynd og uppskrift: icelandiclamb.is

Vídeó

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið