Vertu memm

Frétt

Hafliði yfirdómari í kokkakeppni í Noregi – Bein útsending

Birting:

þann

Christopher W. Davidsen silfurverðlaunahafi Bocuse d´Or 2017 og Hafliði Halldórsson yfirdómari í Norges Mesterskap

Christopher W. Davidsen silfurverðlaunahafi Bocuse d´Or 2017 og Hafliði Halldórsson yfirdómari í Norges Mesterskap

Allt komið á fullt í kokkakeppninni „Norges Mesterskap“ sem haldin er í Bergen í Noregi.

Hafliði Halldórsson matreiðslumaður er yfirdómari í keppninni og með honum til halds og traust eru eftirfarandi dómarar:

  • Jørn Lie
  • Christopher W. Davidsen
  • Christer Rødseth
  • Kristine Øvrebø
  • Bente Dahlslett
  • Erich Heigl

Fyrstu 4 úrslitakeppendur eru byrjaðir að keppa af 10 og á morgun keppa 6 kokkar.

„Hafliða líst vel á keppendur í dag og ánægður með að sjá brosandi og glaða kokka, sem virðast hafa gaman af þessu.“

, sagði Sigurður Rúnar Ragnarsson matreiðslumaður í samtali við veitingageirinn.is aðspurður um stemninguna. Tveir kokkar á vegum Sigurðar eru í keppninni, en þeir starfa hjá veitingahúsinu Spiseriet í Stavanger sem að Sigurður og konan hans Guðrún Eyjólfsdóttir reka. Sigurður er framkvæmdastjóri Spiseriet síðan í janúar og Guðrún veitingastjóri, en Guðrún er framreiðslumaður að mennt.

Sigurður verður með beina útsendingu í dag og á morgun á facebook síðu veitingageirans.

Fyrstu réttir fara út klukkan 12:00 í dag á íslenskum tíma.

Keppnisfyrirkomulag:
Grænmetis „Lacto ovo“ forréttur úr leyndarkörfu (mystery basket) s.s. má nota mjólk og egg.  Mb hráefni í dag er kantarellur, grænkál og jarðskokkar.  Aðalréttur: lambafille og nýru og/eða bris.  Eftirréttur: Valrhona 39% mjólkursúkkulaði, rauðbeður og rjómi.

Nánari upplýsingar um keppnina er hægt að lesa með því að smella hér.

Bein útsending:

 

Mynd: Sigurður Rúnar Ragnarsson

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið