Vertu memm

Frétt

Frumvarp um iðnaðarhamp orðið að lögum – iðnaðarhampur er ekki ávana- og fíkniefni heldur nytjaplanta

Birting:

þann

Hampur - Iðnaðarhampur, Sjálfbærniskólinn á Hallormsstað, Bændur í Berufirði

Algengt er að fólk hafi illan bifur á Iðnaðarhampinum vegna þess að henni er oft ruglað saman við hamp sem ræktaður í þeim tilgangi að framleiða vímuefni.

Alþingi samþykkti í dag frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni sem felur í sér að stjórnsýsla og verkefni sem varða innflutning á hampfræjum til ræktunar á iðnaðarhampi flyst frá Lyfjastofnun til Matvælastofnunar. Við lagasetninguna var horft til þess að iðnaðarhampur er ekki ávana- og fíkniefni heldur nytjaplanta og því eðlilegra að fræ til ræktunar á honum falli undir lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru sem Matvælastofnun hefur eftirlit með.

Sjá einnig:

Ein planta sem uppfyllir allar þarfir mannkyns? Myndir og vídeó

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra veitti á liðnu ári Lyfjastofnun undanþáguheimild með breytingu á reglugerð nr. 233/2001 sem gerði innflutning fræja til ræktunar iðnaðarhamps mögulegan. Heimildin var háð skilyrðum þannig að tryggt væri að ekki yrðu fluttar inn eða ræktaðar plöntur sem innihalda vímuefnið THC í nýtanlegu magni, eða að hámarki 0,2%.  Ráðherra lagði áherslu á að reglugerðarbreytingin væri tímabundin ráðstöfun. Ávana- og fíkniefnalöggjöfin hefði skýr markmið og tilgang sem félli augljóslega að málefnasviðum heilbrigðisráðuneytisins. Það gerði ræktun iðnaðarhamps hins vegar ekki. Því væri nauðsynlegt að skýra lagagrundvöll og ábyrgð þeirra stofnana sem þurfa að koma að framkvæmdinni þegar kemur að leyfisveitingum og eftirliti með ræktun iðnaðarhamps.

Á grundvelli nýsamþykktra laga er gert ráð fyrir að ráðherra landbúnaðarmála setji reglugerð sem kveði á um veitingu leyfis til innflutnings á fræjum af tegundinni Cannabis sativa og skuli þar m.a. koma fram nánari skilyrði og takmarkanir á innflutningi, meðferð og vörslu þeirra fræja sem lögin ná til.

Í áliti velferðarnefndar kemur fram að í allflestum umsögnum sem nefndinni bárust um frumvarp heilbrigðisráðherra hafi því verið fagnað: „Tekið var undir að málaflokkurinn ætti heima hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þá var bent á að sökum undanþáguheimildar með breytingu á reglugerð nr. 233/2001, sem gerði innflutning, meðferð og vörslu fræja til ræktunar iðnaðarhamps mögulega, hefði ræktun hér á landi gengið vel.“

Mynd: úr safni / Matís

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið