Vertu memm

Freisting

Forkeppni Matreiðslumaður ársins 2006 – Skráðir keppendur

Birting:

þann

Forkeppni fyrir matreiðslumann ársins 2006 verður haldin 18. janúar 2006 í Hótel og matvælaskólanum Kópavogi.

Fyrsta holl: 
Í eldhús: 14:00
Byrjað:  14:30
Afgreitt:  16:30

Seinna holl: 
Í eldhús:  17:00
Byrjað:  17:30
Afgreitt:  19:30

Keppendur:
Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson – Hótel Saga
Ágúst Már Garðarsson – Lækjarbrekka
Baldur Hafsteinn Guðbjörnsson – Salt
Björn Bragi Bragason – Perlan
Daníel Ingi Jóhannsson – Skólabrú
Elvar Torfason – Thorvaldsenbar
Guðleifur Kristinn Stefánsson – Hótel Saga
Gunnar Karl Gíslason  – B5
Halldór Karl Valsson – Hótel Holt
Haukur Gröndal – Fjalarkötturinn
Hrefna Rós Jóhannsdóttir Sætran – Sjávarkjallarinn
Jóhann Páll Sigurðarson – Grand Hótel
Steinn Óskar Sigurðsson – Sjávarkjallarinn

Fimm efstu komast í úrslitakeppnina, ekki eru gefin upp sæti.

Tilkynnt verður samdægurs hverjir komast áfram.

Úrslitakeppni verður svo fimmtudaginn 30. mars á sýningunni matur 2006.

Áhöld:
Eldhúsin verða án smá áhalda svo keppendur þurfa að koma með öll áhöld með sér.

Dómarar:
Dæmt verður með blind smakki og dómarar verða 5 sem allir hafa lokið dómaranámskeiði NKF:
1. Bjarki Hilmarsson, yfirdómari
2. Alfreð Ómar Alfreðsson
3. Brynjar Eymundsson
4. Sverrir Halldórsson
5. Óráðstafað

Fatnaður:
Keppendum er skylt að vera í einkennisklæðnaði sem er svartar buxur, hvítur kokkajakki, húfa og hvít svunta, allt vel til haft.

Uppskriftir:
Matseðli og uppskriftum skal skila inn á Íslensku og ensku í tölvutæku formi, ásamt matseðli og kynningu til útstillingar.
Uppskriftir verða eign Klúbbs Matreislumeistara.

Hráefni og uppsetning:
Eldaður er einn aðalréttur fyrir 10 manns sem eru framreiddir á diskum.
(5 fyrir dómara, 1 í útstillingu og 4 fyrir dómaranámskeið)

Grunnhráefni er eitt lambalæri og einn lambahryggur og skal eldast í það minnsta á tvo vegu.

Keppendur hafa tvo tíma til að afgreiða á keppnisstað, en mega koma með allt tilbúið (mega vera búnir að forvinna/forelda allt)

Vægi dóma:
Matseðill 10%
Framsetning/samsetning 40%
Bragð 50%

Fyrir hönd nefndar um Matreiðslumann ársins
Bjarki Hilmarsson, Formaður

 

Greint frá á heimasíðu KM

 

 

 

[email protected]

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið