Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Flóran opnar eftir vetrardvala

Birting:

þann

Cafe Flóra í Grasagarðinum - Marentza Poulsen

Marentza Poulsen

Café Flóra í Grasagarðinum í Laugardal hefur opnað eftir vetrardvala, en þetta skemmtilega skandinavíska bistró er opið frá 1. maí til 1. september ár hvert. Þar sem veðrið hefur verið svo dásamlegt síðustu daga og spáin góð framundan, þá hvar ákveðið að opna aðeins fyrr.

Rekstraraðili Flórunnar er smurbrauðsdrottning okkar Íslendinga Marentza Poulsen.  Síðastliðinn vetur hefur Marentza t.a.m. aðstoðað Klambrar Bistrø á Kjarvalstöðum við gerð á smurbrauði, en staðurinn hefur boðið upp á 3-4 tegundir af smurbrauði að hætti Frú Poulsen.

Sjá einnig:

Marentza Poulsen snaraði fram dýrindis smurbrauð

Veitingageirinn.is hefur oft heimsótt Café Flóru í gegnum árin enda staðurinn einn af betri veitingastöðum landsins með mikinn metnað.

Fleiri fréttir um Café Flóru er hægt að lesa með því að smella hér.

Flóran hefur ávallt haft það sem markmið að nota besta fáanlega hráefni með áherslu á lífræna ræktun og milliliðalaus viðskipti beint við býli.

Matseðillinn samanstendur af léttum og einföldum réttum sem eru í anda skandinavískrar matarhefðar og eru unnir úr hráefni sem er að mestu sótt í garðinn og sveitir landsins.

Mynd: Ólafur Sveinn Guðmundsson

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið