Vertu memm

Uppskriftir

Fiskur í parmesan hjúpi

Birting:

þann

Parmesan fiskur

Parmesan fiskur

Ýsa í raspi er yndislegur matur sem flestir Íslendingar hafa notið frá barnæsku til æviloka. Þetta er réttur sem hefur verið óbreyttur frá upphafi. En það má breyta til og þessi aðferð er bara í meira en góðu lagi. Bara velja uppáhalds fiskinn, hjúpa hann og elda. Flóknara er það ekki.

Innihald:

  • 800 g fiskflök svo sem þorskur, ýsa eða koli, roð- og beinlaus í hæfilegum bitum
  • 1 egg
  • 1 msk mjólk
  • 1 bolli rifinn parmesan ostur
  • 2 msk hveiti
  • 1⁄2 tsk papríkuduft
  • 1⁄4 tsk salt
  • 1⁄8 tsk pipar

Aðferð:

  1. Hrærið eggið og mjólkina saman í skál og leggið til hliðar. Takið plastpoka með „rennilás” og setjið í hann ostinn, hveitið og kryddið. Lokið pokanum og hristið vel.
  2. Veltið fiskinn upp úr eggja-, og mjólkurblöndunni og setjið fiskbitana einn og einn í pokann og hristið vel svo bitinn hjúpist vel.
  3. Bakið fiskbitana ofnföstu móti í bakaraofni við 180 gráður í um 15-20 mínútur. Tíminn fer eftir því hve þykk stykkin eru.
  4. Berið fram með fersku salati að eigin vali, hrísgrjónum eða nýjum soðnum kartöflum.

Uppskrift þessi er frá audlindin.is og er birt hér með góðfúslegu leyfi þeirra.

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið