Vertu memm

Markaðurinn

Færri vinnustundir en dregur úr áreitni og einelti

Birting:

þann

Veitingastaður

Fleiri félagsmenn eru í launaðri vinnu núna en samkvæmt síðustu könnun. Laun fyrir hverja vinnustund hafa haldist í hendur við launavísitölu Hagstofunnar en vinnustundir eru færri og yfirvinna minna. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í könnun sem Gallup gerði fyrir MATVÍS á dögunum. Í könnuninni kemur fram að starfandi félagsmönnum á veitingahúsum fækkaði áberandi miðað við síðustu könnun sem gerð var. Á móti kemur að smávægileg fjölgun er  á öðrum tegundum vinnustaða.

Í niðurstöðum könnunarinnar, sem 34% félagsmanna tóku, kemur fram að litlar breytingar eru á samsetningu starfsstétta frá síðustu könnunum. Flestir félagsmenn eru matreiðslumenn; ríflega helmingur. Langflestir þeirra eru fastráðnir en lítilsháttar fækkun er á fastráðningu miðað við síðustu kannanir. Ætla má að heimsfaraldurinn spili þarna rullu.

Þegar rýnt er í kjör og vinnutíma kemur fram að álíka stórt hlutfall svarenda er í fullu starfi og í fyrri könnunum. Vinnustundum fækkaði hins vegar um næstum fjórar frá síðustu könnun. Þá svara fleiri því til að þeir vinnu ekki yfirvinnu en í könnuninni sem gerð var 2016. Yfirvinnugreiðslur eru því minni hluti heildarlauna en í könnununum 2016 og 2018. Færri vinna vaktavinnu.

Heildarlaun þátttakenda eru að meðaltali 736 þúsund og hækka um 14% frá september 2018. Mánaðarlaun eru að meðaltali 665 þúsund og hækka um 16% frá 2018. Heildarlaun fyrir hverja vinnustund hækka um 20% en það er í takti við launavísitölu Hagstofu.

Starfshlutfall skertist hjá helmingi þátttakenda

Nærri helmingur þátttakenda varð fyrir lækkun starfshlutfalls vegna COVID-19. Nærri fimmti hver starfsmaður varð fyrir uppsögn. Mest var um lækkun starfshlutfalls í framleiðslustörfum, á veitingahúsum, hótelum og gististöðum.

Þrátt fyrir þessar skerðingar mátu aðeins fimm prósent starfsöryggi sitt lítið. Konur mátu starfsöryggi sitt minna en karlar. Starfsöryggið var metið minnst á hótelum, veitingahúsum og gististöðum.

Stjórnendur og bakarar eru þær starfsstéttir úr röðum félagsmanna þar sem fólk er ánægðast með kjör sín. Ánægja með laun stendur í stað á milli kannana.

Nemum fjölgar í bakstri

Í könnuninni kom í ljós að nemum fækkar í matreiðslu og framreiðslu en þeim fjölgar í bakstri.  Ánægja með námið er svipuð og verið hefur en fleiri segjast nú vera einir á starfsstöð en í fyrri mælingum. Skráning í námsferilbók er enn ábótavant en um 70% nema segja að óreglulega eða aldrei sé fært í námsferilsbók.

Dregur heldur úr áreitni og einelti

Könnunin sem lögð var fyrir félagsmenn á dögunum náði til þátta á borð við áreitni og eineltis á vinnustöðum. Jákvæða þróun má sjá á svörum við þessum viðfangsefnum. Ríflega 12% sögðust hafa orðið fyrir einelti í vinnunni eða á vinnutengdum viðburðum síðastliðna 12 mánuði. Einelti hefur dregist saman um sex prósentustig. Konur, yngra fólk og fólk með skemmri menntun verður frekar fyrir einelti en aðrir.

Ríflega 6% höfðu orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni eða á vinnutengdum atburðum síðastliðna 12 mánuði, bæði karlar og konur. Úr svörunum má lesa að ungt fólk verði frekar fyrir áreitni en hinir eldri. 18% höfðu orðið vitni að einelti eða kynferðislegri áreitni undanfarið ár. Sú tala var um 24% árið 2018.

Aukin ánægja með félagið

Að lokum má geta þess að ánægja með starfsemi MATVÍS hefur aukist, sérstaklega þegar horft er til könnunar sem gerð var 2016.

Mynd: úr safni

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið