Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Eliza Reid forsetafrú var fyrsti gesturinn hjá ÉTA í Vestmannaeyjum

Birting:

þann

Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Jean Reid

Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Jean Reid í Vestmannaeyjum.
Mynd: facebook / Eliza Reid

Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Jean Reid eru í ferðalagi þessa dagana með börnunum og hvetja til að mynda fólk til að ferðast innanlands.

Guðni, Eliza og börn eru nú stödd í Vestmannaeyjum, þar sem þau hafa farið í siglingar, skoðað söfn, út að borða og margt fleira.

Veitingastaðurinn ÉTA í Vestmannaeyjum

Gísli Matthías Auðunsson og Eliza Jean Reid.
Mynd: Instagram / ÉTA

Eliza Reid forsetafrú mætti fyrst gesta í gær á prufuopnun hjá nýja veitingastaðnum ÉTA í Vestmannaeyjum og tók Gísli Matthías Auðunsson matreiðslumeistari og einn af eigendum vel á móti henni.

Matseðillinn í gær og í dag, sunnudaginn 10. maí:

Veitingastaðurinn ÉTA í Vestmannaeyjum

Mánudag til miðvikudags verður lokað á meðan starfsfólkið er að stilla saman strengi og yfirfara allt saman.  ÉTA opnar formlega á fimmtudaginn 14. maí næstkomandi.

Um ÉTA

Á ÉTA verður í boði hágæða-skyndibiti unnin úr góðu hráefni og undirbúið frá grunni á staðnum. Markmið staðarins er að hafa ekki of marga rétti á matseðlinum en þó þannig að allir eiga geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

ÉTA er nýr veitingastaður í Vestmannaeyjum

Sérstaða veitingastaðarins verða hamborgarar sem eru hakkaðir á staðnum úr sérvöldum vöðvum og djúpsteiktur kryddaður kjúklingur; vængir, leggir og samlokur.

Fleiri réttir verða á seðlinum, nauta mínútusteik, fiskur í orly svo fátt eitt sé nefnt.

Hægt verður að sitja inni og einnig taka með í take-away, en take away kerfið verður á netinu á vefsíðu ÉTA.

ÉTA er systur staður Slippsins í Vestmannaeyjum.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið