Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Brönsinn á Spírunni slær í gegn – Myndir og vídeó

Birting:

þann

Veitingastaðurinn Spíran á annarri hæð í Garðheimum - Bröns / brunch

Bröns á Spírunni.
“Það er í raun allt unnið frá grunni hjá okkur nema mjólkurvörur,…“

Það er nóg um að vera á veitingastaðnum Spíran sem staðsettur er á annarri hæð í Garðheimum við Stekkjarbakka 4-6 í Reykjavík, en þar er að jafnaði um 120 manns sem borða í hádeginu.

Föstudagarnir eru vinsælastir þar sem að boðið er upp á naut og bearnaise á 2.190 með súpu dagsins og uppáhelltu kaffi. Spíran er með opið mánudaga til föstudag 11:00- 16:00 og laugardaga og sunnudaga 11:30 – 17:00 og hádegismaturinn er afgreiddur mánudaga til fimmtudaga 11:30-13:30 og föstudaga 11:00-14:00. Fyrir þá sem eru í veisluhugleiðingum þá hefur Spíran verið að taka inn hópa á kvöldin.

Um rekstur Spírunnar sér Rúnar Gíslason matreiðslumeistari og eigandi veisluþjónustunnar Kokkarnir.

Í byrjun mánaðarins hóf Spíran í fyrsta sinn að bjóða upp á bröns þar sem boðið er upp á súpu, brauð, hummus, beikon, eggjahræru, omilettu, grafinn lax, nauta carpaccio, margar tegundir af salötum, miniburgers, hafra og chia graut, osta, pönnukökur og síróp svo fátt eitt sé nefnt. (  Sjá matseðil hér )

„Vegna þess að við teljum okkur hafa fram að færa ákveðna tegund af heilsumeðvituðum mat, sem okkur fannst vera vöntun á þegar komið er að Brunch. Einnig hafa viðskiptavinir okkar hreinlega verið að kalla eftir þessu þar sem að mikil ánægja hefur verið með hádegismatinn hjá okkur.“

, sagði Rúnar Gíslason í samtali við veitingageirinn.is aðspurður um hvers vegna að bjóða uppá bröns.

Veitingastaðurinn Spíran á annarri hæð í Garðheimum - Bröns / brunch

Það liggur beinast við að spyrja um matseldina á brönsinum:

„Það er í raun allt unnið frá grunni hjá okkur nema mjólkurvörur, við gerum okkar eigin möndlumjólk, múslí, brauð, pestó, hummus og eru allar sósur lagaðar af okkur. Við vinnum allt hráefni hjá okkur, gröfum okkar eigin lax, bökum allar kökur og allt bakkelsi sjálf.“

Brönshlaðborðið er í boði laugardaga og sunnudaga 11:30 – 15:00. Fjölmargir hafa kíkt á brönsinn og á samfélagsmiðlunum snapchat, facebook og instagram má sjá að gestir eru greinilega ánægðir með matinn.

Veitingastaðurinn Spíran á annarri hæð í Garðheimum - Bröns / brunch

Vídeó

Í meðfylgjandi myndbandi fer Árný Davíðsdóttir rekstrarstjóri Spírunnar yfir hvað er í boði á brönshlaðborðinu:

 

 

Myndir: facebook / Spíran

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið