Vertu memm

Markaðurinn

Bragðbættir rjómaostar sem beðið hefur verið eftir

Birting:

þann

Nýir bragðbættir rjómaostar frá MS

Nýir bragðbættir rjómaostar frá MS

Rjómaostar eru í miklu uppáhaldi hjá matgæðingum landsins, hvort sem er í matargerð, á beyglur og brauð nú eða á ostabakkann. Eflaust munu margir gleðjast í næstu búðarferð því nú eru komnir á markað nýir bragðbættir rjómaostar frá MS.

Fimm tegundir eru í boði, hver annarri betri. Hreinn rjómaostur og rjómaostur með pipar eru endurbættar útgáfur rjómaosta sem áður voru á markaði en hinar þrjár tegundirnar eru glænýjar. Þetta eru rjómaostur með grillaðri papriku og chilli, rjómaostur með karamellíseruðum lauk og rjómaostur með graslauk og lauk.

Það verður spennandi að bæta þessum ljúffengu rjómaostum í matargerðina og hérna eru nokkrar hugmyndir um notkunarmöguleika.

Bragðbættir rjómaostar frá MS henta vel:

  • Ofan á kex, brauð og beyglur
  • Í sósugerð, bæði til að bragðbæta og þykkja þær
  • Á pizzur og í pastarétti
  • Í ofnbakaða rétti á borð við brauð- og fiskrétti
  • Sem ídýfur með niðurskornu grænmeti og nachos flögum
  • Í súpur og eggjahrærur
  • Í hvað sem manni dettur í hug

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið