Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Bræðurnir Anton og Ólafur opna kaffihúsið Kaldalæk í Ólafsvík

Birting:

þann

Kaldilækur í Ólafsvík

Bræðurnir Anton Jónas og Ólafur Hlynur Illugasynir

Heimilislegt lítið kaffihús í hjarta Sjómannagarðsins í Ólafsvík opnaði nú á dögunum.  Það eru bræðurnir Anton Jónas og Ólafur Hlynur Illugasynir sem eru eigendur kaffihússins Kaldilækur, en um hugmyndina að opna kaffihús sagði Anton Jónas í samtali við Skessuhornið:

„Ég hef lengi velt því fyrir mér hvað lítið að gera fyrir ungt fólk hérna í Snæfellsbæ, eða í það minnsta hefur mér fundist það sárvanta kaffihús eða stað þar sem vinir geta komið saman og horft saman á leik í enska, spilað borðspil eða bara spjallað saman yfir kaffibolla.“

Kaldilækur í Ólafsvík

Húsið er friðað frá árinu 1910, og er um 30 fermetrar.
Mynd: skjáskot af google korti

Í boði eru nokkrar tegundir af kaffi, bakkelsi, léttvín, samlokur, kökur svo fátt eitt sé nefnt.  Kaldilækur tekur fimmtán manns í sæti.  Staðurinn opnaði á 7, maí s.l. og hefur fengið góðar viðtökur.

Kaldilækur er fyrst og fremst hugsaður fyrir heimamenn en auðvitað eru allir velkomnir, segir Anton í samtali við Morgunblaðið en Anton kemur til með að standa vaktina sjálfur í sumar.  Bróðir hans hyggst stunda strandveiðar í sumar en gæti stokkið til ef mikið verður að gera.

Myndir: facebook / Kaldilækur

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið