Vertu memm

Frétt

Omnom vinnur HM í súkkulaðigerð – Besta mjólkursúkkulaði í heimi

Birting:

þann

Omnom Chocolate – Milk of Nicaragua

Omnom súkkulaði hlaut á laugardaginn einn mesta heiður í súkkulaðigerð sem völ er á þegar súkkulaðið Milk of Nicaragua vann gulllverðlaun á heimsmeistaramótinu í súkkulaðigerð fyrir besta mjólkursúkkulaði í heimi. Omnom keppti við stærstu nöfnin í súkkulaðiheiminum sem sérhæfa sig úr baun-í-bita súkkulaði.

Þá hlaut Omnom fjögur önnur gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun og þrenn bronsverðlaun í mismunandi flokkum á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Flórens á Ítalíu.

„Það hefði aldrei hvarflað að okkur fyrir fimm árum þegar við stofnuðum Omnom að við værum að fara fá verðlaun fyrir besta mjólkursúkkulaðið. Það hefur alltaf verið í gæðastefnu okkar að nota bestu mögulegu hráefnin hverju sinni. Oft er það þannig að ef maður er með góð hráefni þá er eftirleikurinn auðveldur,“

segir Kjartan Gíslason súkkulaðigerðarmaður og annar stofnenda Omnom.

Omnom

Kjartan og Óskar.
Mynd frá heimsókn Omnom til Níkaragúa

„Náin samskipti við kakóbaunabændur gerir okkur kleift að stunda heiðarleg viðskipti og auka sjálfbærni kakóbaunabænda,“

sagði Kjartan.

Aðalverðlaun

Hreint /Unnið úr upp­runa­baun með mjólk

  • Gull: Omnom Chocolate  – Milk of Nicaragua

Míkrólögun – Hreint / Unnið úr upprunabaun

  • Silfur: Omnom Chocolate  – Madagascar 66%

Mikró­lög­un – Hreint / Unnið úr upp­runa­baun / dökkt mjólkursúkkulaði (sem inni­held­ur 50% kakó eða meira)

  • Gull: Omnom Chocolate – Milk of Nicaragua
  • Brons: Omnom Chocolate  – Dark Milk of Tanzania

Míkró­lög­un – Hreint / ​Unnið úr upprunabaun með mjólk

  • Gull: Omnom Chocolate – Milk of Madagascar

Viðbætt mjólkursúkkulaði (t.d. hnetur, karamella)

  • Silfur: Omnom Chocolate  – Caramel + Milk

Hvítt súkkulaði

  • Brons: Omnom Chocolate – Coffee + Milk
  • Brons: Omnom Chocolate – Lakkrís + Sea Salt

Viðbætt hvítt súkkukaði (t.d. með hnetum, karamellu)

  • Silfur: Omnom Chocolate – Black n’ Burnt Barley

Hreint /​ Unnið úr upprunabaun dökkt mjólk­ursúkkulaði (sem inni­held­ur 50% kakó eða meira)

  • Gull – Omnom Chocolate  – Milk of Nicaragua
  • Gull – Direct trade: Omnom Chocolate – Milk of Nicaragua

Myndir: aðsendar

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið