Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Barr er nýr veitingastaður í Menningarhúsinu Hofi

Birting:

þann

Silja Björk Björnsdóttir

Silja Björk Björnsdóttir

Nýr veitingastjóri hefur tekið við veitingarekstrinum í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, eftir að hjónin, Aðalheiður Hannesdóttir og Guðmundur Ragnar Sverrisson hættu rekstri í febrúar s.l. vegna Covid-19.

Sjá einnig:

Veitingastaðurinn Eyrin á Akureyri hættir rekstri

Staðurinn hefur fengið nafnið Barr Kaffihús og veitingastjóri er Silja Björk Björnsdóttir.  Silja segir nafnið sótt í þéttvaxna og hrjóstuga barrskóga landsins.

„Meiningin að koma með græna náttúruna inn í menningarhúsið. Á Barr verður lögð áhersla á gott, gæðakaffi frá Te & Kaffi, klassíska drykki í bland við nýjungar, kaffikokteila og auðvitað vandaða þjónustu við gesti.

Boðið verður upp á súrdeigsbrauð frá Böggvisbrauði, dýrindis kökur og sætindi úr héraði, súpur og samlokur frá Múlabergi og gómsæt náttúruvín frá Berjamó,“

segir Silja Björk í fréttatilkynningu.

Sjá frétt um Böggvisbrauðin hér:

Böggvisbrauðin úr fyrsta íslenska viðarhitaða brauðofninum komin í sölu

Barr Kaffihús opnar fyrstu vikuna í júní

„Til okkar eru allir velkomnir. Það verður hægt að sitja úti við fjörðinn í góðri gæðastund með könnu af svalandi Pimm’s eða norðlenskum craft bjórum. Við ætlum að bjóða upp á allskonar skemmtilega kaffidrykki sem sækja innblástur í kaffimenningu framandi landa og einnig verða allskonar skemmtilegir pop-up viðburðir á kaffihúsinu, bæði menningarviðburðir og matarupplifanir í bland,“

segir Silja Björk.

Silja Björk hefur búið síðustu átta árin í Reykjavík en er fædd og uppalin á Akureyri.

„Ég hef unnið í þjónustu- og veitingageiranum nánast alla mína starfsævi, komið að rekstri kaffihúsa Te & Kaffi og veitingastaða víða í borginni.

Ég er mjög spennt að vera komin aftur heim til Akureyrar og njóta mín í faðmi Eyjafjarðarins og fjölskyldunnar og ekki skemmir fyrir að vera komin í flottan mannauð Menningarfélagsins.

Það eru spennandi tímar framundan og sumarið verður bjart og skemmtilegt hjá okkur á kaffihúsinu, gott kaffi í sólinni með fallegasta útsýni bæjarins.“

Segir Lilja að lokum.

Mynd: mak.is

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið