Vertu memm

Nemendur & nemakeppni

Arnór Ingi sigraði keppnina Markaðsneminn 2016

Birting:

þann

Markaðsneminn 2016

Keppendur og dómarar

Keppnin Markaðsneminn hjá matreiðslunemum á Fiskmarkaðinum og Grillmarkaðinum var haldin laugardaginn 16. janúar s.l. á Grillmarkaðnum í þriðja sinn.

Úrslitin voru svo tilkynnt í gær á árshátíð staðanna við mjög góðar undirtektir þeirra 170 starfsmanna sem vinna á báðum stöðum samtals.

Markaðsneminn 2016

Guðbjörg og Thelma

Markaðsneminn 2016

Einar Óli Guðnason og Bjartur Elís Friðþjófsson

Alls kepptu 14 nemar en það er 2/3 af þeim sem eru að læra á þessum tveimur stöðum.  Þeminn var ostur 25 % og mátti gera forrétt, aðalrétt eða eftirrétt til að hafa þetta sem fjölbreytilegast.

Sjá einnig: Ívar sigraði keppnina Markaðsneminn 2015

Úrslit

Keppnin var ströng og mjótt var á munum á fyrstu þremur sætunum.  Ábyrgðarmenn keppninnar ákváðu að gefa út líka fjórða sætið en engin verðlaun voru veitt fyrir það sæti.

Markaðsneminn 2016

4. sæti – Guðbjörg Líf Óskarsdóttir

4. sæti

Í 4. sæti hafnaði Guðbjörg Líf Óskarsdóttir nemi á Fiskmarkaðnum en hún var með eina réttinn í keppninni sem var ostaréttur alveg í gegn.  Hún bjó sjálf til ostinn og heppnaðist þetta mjög vel.

Markaðsneminn 2016

3. sæti – Einar Óli Guðnason

3. sæti

Í þriðja sæti var hann Einar Óli Guðnason en hann er að læra á Grillmarkaðnum og var með eftirrétt sem innilhélt rjómaost.

Markaðsneminn 2016

2. sæti – Bjartur Elís Friðþjófsson

2. sæti

Annað sætið fór til hans Bjarts Elís Friðþjófssonar nema á Grillmarkaðnum sem var líka með bragðbesta réttinn en hann klikkaði smá á magninu af osti sem þurfti í réttinn svo mínusinn sem hann fékk þar varð til þess að hann varð í öðru sæti.  Hann var með nautatartar með reyktum beinmerg og gratíneruðum geitaosti.

Markaðsneminn 2016 - Arnór Ingi Bjarkason

Sigurvegarinn Arnór Ingi Bjarkason

Markaðsneminn 2016

1. sæti – Arnór Ingi Bjarkason

1. sæti

Hann Arnór Ingi Bjarkason hreppti fyrsta sætið en hann var með grænmetisrétt, þann eina í keppninni.  Bjórsoðnar gulrætur, pikklaðar og stökkar og hann gerði líka ostinn sjálfur sem hann panneraði upp úr frostþurrkuðu dilli.  Arnór er að læra á Fiskmarkaðnum og fór hann að vinna í nokkra mánuði á Noma á síðasta ári þar sem hann bætti við kunnáttuna sem hann fær á Fiskmarkaðnum.

Mikill metnaður í gangi hjá öllum og frábær keppni í alla staði.  Allir matreiðslumenn Fisk- og Grillmarkaðsins tóku að sjálfsögðu þátt í deginum, Fannar Vernharðsson yfir kokkur á VOX var gestabragðdómari í ár og vilja eigendur og starfsfólk Fisk- og Grillmarkaðsins þakka honum sérstaklega fyrir vel unnin störf.

 

Myndir: Emilía Kristín Birnudóttir

 

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið