Vertu memm

Uppskriftir

Amerískar Pönnukökur

Birting:

þann

Amerískar Pönnukökur

Fyrir þá sem vilja, þá er hægt að setja 3-4 msk af kotasælu í deigið.

225 gr sigtað hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk salt
2 tsk flórsykur
250 ml mjólk
2 egg
55 gr brætt smjör

Hrærið saman smjör, mjólk og egg. Blandið þurrefnum saman í skál og hellið mjólkurblöndunni smátt og smátt saman við. Hrærið saman með sleif eða þeytara.  Bakið á viðloðunarfrírri pönnu.

Þessi uppskrift nægir í 10 stórar eða 18 litlar pönnukökur. Framreiðið með smjöri og hlynsírópi.

Höfundur: Auðunn Sólberg Valsson matreiðslumeistari.

Mynd: úr safni

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið