Vertu memm

Keppni

Allt komið á fullt hjá Landsliði bakara – Keppa á Norðurlandakeppni í haust – Myndir

Birting:

þann

Eins og fram hefur komið þá var Landslið í bakstri stofnað í byrjun árs sem mun æfa og keppa fyrir Íslands hönd í bakarakeppnum sem haldnar verða á komandi árum.

Metnaðarfullir bakarar eru farnir að hittast í Hótel- og matvælaskólanum á mánudagskvöldum til æfinga undir stjórn Ásgeirs Þórs Tómassonar.  Landsliðið stefnir nú á Norðurlanda keppni í bakstri (Nordic Bakery Cup 2017) sem haldin verður næstkomandi haust.

Bakhjarlar landsliðsins eru Landssamband bakarameistara og Matvís og eru meðlimir í landsliðinu í óða önn við að leita að styrktaraðilum til að standa straum að kostnaði. Þeir sem áhuga hafa að styrkja landsliðið er bent á að hafa samband við Ásgeir Þór Tómasson bakarameistara á netfangið [email protected]

Meðlimir í Landsliði bakara:

  • Gunnlaugur Arnar Ingason
  • Daníel Kjartan Ármannsson
  • Helgi Freyr Helgason
  • Rúnar Snær Jónsson
  • Daníel Karl  Ármannsson
  • Stefán Hrafn Sigfússon

Með fylgja myndir frá æfingu sem haldin var á mánudaginn s.l. Bakarar og bakaranemar fylgdust vel með æfingunni.

 

Myndir: Ásgeir Þór Tómasson

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið