Vertu memm

Frétt

272 umsóknir í Matvælasjóð – Sjóðurinn hefur 630 milljónir til úthlutunar

Birting:

þann

Grill - Léttvín - Hvítvín - Strönd

Alls bárust 272 umsóknir um styrki úr Matvælasjóði, en umsóknarfrestur var til 6. júní. Sjóðurinn hefur 630 milljónir til úthlutunar og næstu skref eru þau að umsóknirnar fara til fagráða sjóðsins sem munu veita umsögn um þær og í kjölfarið mun stjórn sjóðsins gera tillögu til Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um úthlutun úr sjóðnum.

Sjá einnig:

Matvælasjóður: 630 milljónir til úthlutunar

Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi og er styrknum ætlað að fleyta hugmynd yfir í verkefni. Alls bárust 124 umsóknir í Báru.

Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð. Alls bárust 58 umsóknir í Afurð.

Kelda styrkir rannsóknarverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu. Alls bárust 47 umsóknir í Keldu.

Fjársjóður styrkir sókn á markaði. Alls bárust 43 umsóknir í Fjársjóð.

Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.

Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla um land allt.

Allar upplýsingar um sjóðinn má finna hér á heimasíðu hans á vefslóðinni www.matvælasjóður.is

Mynd: úr safni

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið