Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

108 Matur – Baldur: „með þessu áframhaldi er bara sól í heiði og framtíðin björt“

Birting:

þann

108 matur - Baldur Guðbjörnsson - Gunnar Davíð Chan

Baldur Guðbjörnsson og Gunnar Davíð Chan

Það er draumur margra að opna eigin veitingastað en þeir einir vita það sem hafa prufað að það er oftar en ekki botnalaus vinna og áhyggjur.  Sem betur fer þá erum við misjöfn að upplagi og ekki allir sem láta slíkt smotterí halda aftur af sér.

Ekki fyrir svo löngu síðan heyrði ég í gömlum vinnufélaga mínum honum Baldri Guðbjörnssyni sem bauð mér að kíkja í heimsókn á nýjan stað sem hann var að opna með Gunnari Davíð Chan í Fákafeni 9.

108 matur - Baldur Guðbjörnsson - Gunnar Davíð Chan

Ég læt ekki bjóða mér slíkt tvisvar enda mikill áhugamaður um veitingastaði, svo fyrir stuttu renndi ég við hjá þeim félögunum og bankaði upp á.  Staðurinn hefur fengið nafnið 108 matur sem er bein tenging við staðsetninguna.

Mikið að gera

Mig bar að garði stuttu fyrir hádegið og strákarnir voru þá  á fullu að koma matnum fram á metnaðarfullan hátt. Ég sá að þeir höfðu varla tíma til að spjalla enda röð farin að myndast þó að klukkan væri ekki enn orðin hádegi.

108 matur - Baldur Guðbjörnsson - Gunnar Davíð Chan

Baldur sagði mér að í byrjun apríl hafi þeir opnað og væru ákaflega sáttir við móttökurnar og varla hægt að hugsa sér betra upphaf á nýjum veitingastað.

Þegar ég spurði hann hvað hefði fengið hann til að rjúka úr fína starfinu og fara út í þetta basl, þá sagði hann mér að þeir félagar hefðu fengið veður af því að þetta húsnæðið væri að losna og gamli draumurinn um að opna sitt eigið hafði tekið sig upp á nýju og þeir ákváðu að láta bara slag standa.

Góðar móttökur

„Móttökurnar hafa verið miklu betri en við höfðum látið okkur dreyma um og með þessu áframhaldi er bara sól í heiði og framtíðin björt“ sagði Baldur og hló. „Nei grínlaust“ hélt hann áfram, „þá erum við að fara okkar eigin leiðir hérna. Við elskum að elda góðan mat og okkur langar að bjóða upp á góðan og spennandi heimilismat ef það má kalla réttina það“.

108 matur - Baldur Guðbjörnsson - Gunnar Davíð Chan

Núna í morgun vorum við að klára að gera kjötbollur enn eina ferðina, en þær hafa slegið rækilega í gegn og það er varla að við höfum undan að steikja. Þetta á eiginlega við flesta af okkar réttum“ hélt hann áfram. „Núna um daginn vorum til dæmis að prufa okkur áfram með grísarifin okkar en gátum ómögulega komist að niðurstöðu um hvaða sósa væri best svo við blönduðum bara saman báðum leynisósunum og fengum alveg frábæra útkomu“ hélt hann áfram og hló.

Ég sá að hann var farinn að verða aðeins órólegur út af þessu kjaftæði enda röðin farin að lengjast svo ég smellti af nokkrum myndum og þakkaði fyrir mig.

108 matur er í Fákafeni 9 og er opið alla virka daga frá klukkan 11:30 fyrir hádegismat og síðan er opið frameftir degi og eru þá heimabakaðar hnallþórur í boði ásamt öðru meðlæti. Einnig er boðið upp á mat til nærliggjandi fyrirtækja.

Ólafur Sveinn er menntaður sem matreiðslumeistari og rekstrarfræðingur af matvælasviði frá Göteborg Universitet. Í dag starfar Ólafur hjá HSS í Reykjanesbæ og hefur skrifað lengi um veitingastaði ásamt ljósmyndun fyrir veitingastaði og hótel. Hægt er að hafa samband við Ólaf á netfangið [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið